Sending reikninga
Þjónusta Span í sendingu rafrænna reikninga gengur út á að þú sendir viðskiptavinum þínum rafræna reikninga beint úr þínu bókhaldi í stað þess að senda þá á pappírsformi. Þannig losnar þú við mikið umstang í kringum reikningahald.
Ávinningur:
- Aukið hagræði í bókhaldi
- Sparnaður í kostnaði (póstburðargjöld, efniskostnaður, prentunarkostnaður, vinna við að setja í umslög og póstleggja).
- Ímynd fyrirtækisins batnar, þú sýnir viðskiptavinum þínum að þú sért trúr þeim og með kostnaðarvitund.
- Tímasetning innborgana verður fyrirsjáanlegri og öruggari, sem gerir sjóðsstreymisáætlanir og fjárfestingaráætlanir nákvæmari.
- Umhverfisávinningurinn er mikill.
- Áreiðanleiki og rekjanleiki.
- Sjálfvirkni minnkar hættu á mistökum.
- Reikningar berast strax og týnast ekki.
- Aukin ánægja viðskiptavina vegna ávinnings sem þeir njóta.
