Móttaka reikninga
Móttaka reikninga fer á rafrænu formi beint inn í bókhald og samþykktarkerfi og dregur verulega úr handskráningu. Fjárhagslegur ávinningur er umtalsverður.
Ávinningur
- Fyrirtæki móttaka reikninga rafrænt beint frá birgjum í bókhaldskerfi sitt í gegnum Span.
- Reiknings- og greiðsluupplýsingar bókaðar í samþykktarkerfi eða beint í færslubækur. Staðfesting á bókun send útgefanda.
- Aðgangur úr bókhaldskerfum móttakanda og útgefanda að rafrænni mynd reiknings.

Sparnaður
- Reikningar berast strax og þar með er bókhaldið uppfært fyrr.
- Enginn launakostnaður við að opna umslög og koma reikningum fyrir.
- Enginn kostnaður við að skanna reikninga.
- Lægri launakostnaður við bókun reikninga.
- Lægri kostnaður við afstemmingar og villuleit, engar innsláttarvillur.
- Lægri seðilgjöld.
Áreiðanleiki og rekjanleiki
- Reikningar berast strax og týnast ekki.
- Sjálfvirk tilkynning ef eitthvað fer úrskeiðis við móttöku reiknings.