Viðskiptamiðstöð

Viðskiptamiðstöð Span tengir saman mismunandi fyrirtæki og stofnanir yfir Internetið þannig að hægt sé að flytja á milli þeirra rafræn viðskiptaskjöl. Viðskiptamiðstöðin gefur fyrirtækjum kost á að nota eina samskiptaleið fyrir öll rafræn skjöl sama til hvaða fyrirtækis þau eiga að berast eða hvaða skjöl er verið að nota.

Eftir því sem rafrænum samskiptaaðilum fjölgar þá verður hagræðið af notkun viðskiptamiðstöðvar Span meira.

Innskráning í viðskiptamiðstöð


Aðgerðir í viðskiptamiðstöð Span

Rafræn viðskiptamiðstöð Span bíður notendum (fyrirtækjum) upp á aðgangsstýrt þjónustuviðmót þar sem notendur geta skoðað upplýsingar um þau skeyti sem þeim tilheyra.

Send eða móttekin skjöl

Notandi (fyrirtækið) getur skoðað yfirlit yfir allan flutning rafrænna skjala í gegnum Span. Hægt er að afmarka listann út frá eftirfarandi breytum.

  • Tegund skjals (t.d reikningar, pantanir eða það sem verið er að senda)
  • Viðtakendur / sendendur
  • Sendingartímabil
  • Staða skeytasendingar
  • Einstaka skjal skv. númeri

Innan hvers vals er hægt að velja hvernig skjölin raðast í listanum og eru valmöguleikarnir:

  • Nafn viðtakanda / sendanda
  • Sendingardagur
  • Staða
  • Tegund skjals
  • Númer

Fyrir hvert einstakt rafrænt skjal er síðan hægt að skoða eftifarandi upplýsingar.

  • Myndræn birting reiknings á hefðbundnu formi
  • XML birting á stöðluðu formi
  • Samskiptasaga skjalsins og staða
  • Tengd skjöl s.s. fylgiskjöl

Allar upplýsingar í þessum uppflettingum eru í rauntíma þannig að notandi getur fylgst nákvæmlega með framvindu og stöðu skjala eftir eigin þörfum.

Atburðarsaga og gagnadagbók

Skoða má í einum lista yfirlit yfir allar skeytasendingar sem tengjast viðkomandi notanda.


Innskráning

Innskráning í viðskiptamiðstöð

Dagsetning
08.02.2012
Klukkan
07:20