Reykjavíkurborg
Lúðvík Vilhelmsson
Borgarbókhald, Agresso þjónusta
Reykjavíkurborg fær mánaðarlega rafræna reikninga frá Orkuveitunni vegna rafmagns og hita, og frá Vodafone vegna fjarskiptakostnaðar. Það er tvímælalaust verulegur vinnusparnaður að geta lesið inn á einu bretti alla reikninga frá þessum birgjum og þurfa ekki að skanna og handbóka reikningana. Einn stærsti kosturinn við rafræna bókun fyrir utan vinnusparnaðinn er að bókunin er alltaf eins og því fullt samræmi milli mánaða í bókun þessara reikninga. Þannig verður bókun réttari og auðveldara að hafa eftirlit með kostnaði.
Verkefnið
Reykjavíkurborg rekur rúmlega 30 stofnanir sem allar kaupa rafmagn og síma. Span hefur um árabil séð Reykjavíkurborg fyrir samræmdri tengingu fyrir móttöku reikninga. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að auka hlut rafrænna reikninga hjá sér og byggja á NESUBL staðlinum.