Fjársýsla ríkisins
Bergþór Skúlason
Sérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins
Fjársýsla ríkisins annast rekstur bókhaldskerfa og færslu bókhalds fyrir flestar stofnanir Ríkisins og vinnur nú að því að markmiði að taka við öllum reikningum rafrænt. Fjársýslan hefur nýtt þjónustu Span með góðum árangri til að taka við reikningum frá mörgum birgjum sem senda á mismunandi stofnarnir, í gegnum eina samræma tengingu og á samræmdu skeytaformi, NESUBL. Samstarfið við Span hefur gengið vel og hefur skipt miklu máli í að tengja birgja hratt og á hagkvæman hátt.
Verkefnið
Íslenska ríkið hefur sett sér það markmið að taka á rafrænan hátt á móti nánast öllum reikningum sem sendir eru til þess og stofnana þess, fyrir árslok 2010. Stofnanir ríkisins eru um 200 og fjöldi birgja þeirra skipta þúsundum.
Fjársýsla ríkisins sér um fjárreiður þessi og hefur unnið náið með Span í að koma á tengingum milli birgja og stofnana. Til að slíkt tenginet sé mögulegt skiptir stöðlun verulegu máli og byggir Fjársýslan allar uppsetningar hjá sér á NESUBL staðlinum.