Um Span
Span ehf. sérhæfir sig í að þjónusta fyrirtæki við að senda og/eða móttaka rafræn viðskiptaskjöl í því markmiði að draga úr handavinnu og ná fram sjálfvirkni í vinnuferlum.
Markmið
Markmið Span er að bjóða rafræna skeytaþjónustu sem hentar fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum. Þjónustur sem styðja við ólíka viðskiptaferla og greiðsluþjónustur.
Sérsvið
Sérsvið Span fellst í að tengja saman mörg fyrirtæki í samskiptaneti þar sem þau geta skipst á rafrænum skjölum á hagkvæman og öruggan hátt, og lesið þau á samræmdan máta inn í viðskiptakerfi sín. Ofan á þessa grunnþjónustu byggir Span síðan ýmsar sérþjónustur og er megináherslan lögð á rafræna reikninga.
Framtíðarsýn
Framtíðarsýn Span er að fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og óháð umfangi viðskipta, noti rafræn skjöl í viðskiptum sín á milli í stað pappírs og nái þannig fram lækkun í kostnaði og aukningu í þjónustu.
Span vinnur að þessari sýn með virkri þátttöku í alþjóðlegu staðlastarfi og samstarfi við hugbúnaðahús í þeim tilgangi að auka framboð hagstæðra hugbúnaðarlausna. Einnig vinnur Span að því að byggja upp og reka hagkvæmt samskiptakerfi sem flutt getur rafræn gögn á milli viðskiptakerfa og gert þau aðgengileg fyrir mismunandi þjónustur.
Saga
Span hf. var stofnað í maí árið 2000 af Kögun hf., Íslandsbanka hf., Landssíma Íslands hf., Burðarási ehf., BYKO hf., Orkuveitu Reykjavíkur ásamt einstaklingum. Árið 2005 var Span sameinað Kögun hf. en í ársbyrjun 2007 var það svo endurreist sem sjálfstætt fyrirtæki með nýjum eigendum. Span ehf. flutti í núverandi húsnæði að Hafnarstræti 20 í Reykjavík þann 30. júlí 2007.